Innlent

Auglýsing Umferðarstofu að erlendri fyrirmynd

Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferðarstofu.
Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferðarstofu.

Þær sögur hafa undanfarið gengið á Netinu að auglýsing Umferðarstofu sem sýnd hefur verið undanfarin misseri sé stolin. Vísað hefur verið í erlenda auglýsingu sem er sláandi lík henni, því til sönnunar. Einar Magnús Magnússon hjá Umferðarstofu vísar þessum sögum alfarið á bug.

Hann segir auglýsingu Umferðarstofu vera endurgerð á norskri auglýsingu og hafði Umferðarstofa til þess fullt leyfi frá norsku vegargerðinni.

„Þegar við kynntum herferðina okkar um sumarið 2006 kom það skýrt fram hjá okkur að um væri að ræða endurgerð á auglýsingu sem norska vegagerðin lét gera," segir Einar í samtali við Vísi. „Þetta er því ekkert feimnismál, nema síður sé, enda vorum við stoltir yfir því að fá leyfi hjá þeim til að nota þessa auglýsingu hér á landi. Það er því ekki verið að stela neinum sköpuðum hlut," segir Einar.

Hér má sjá erlendu auglýsinguna.

Hér er svo auglýsingin frá Umferðarstofu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×