Innlent

Skuggaráðuneyti Samfylkingarinnar

Dagur B. Eggertsson.
Dagur B. Eggertsson. MYND/Valgarður

Samfylkingin í Reykjavík hefur komið á fót skuggaráðuneytum. Borgarstjórnarflokkurinn hefur skipt með sér verkum og skipað talsmenn í einstökum málaflokkum.

Samfylkingin segir þetta nýmæli eiga að stuðla að markvissum málflutningi flokksins í öllum málaflokkum og skýra „ábyrgð, forystu og verkaskiptingu innan borgarstjórnarflokksins," eins og segir á heimasíðu flokksins.

Talsmennirnir munu hafa forystu um stefnumótun, kynningarstarf og uppbyggingu tengslanets. Þá vonast menn eftir því að þetta fyrirkomulag auðveldi almenningi og flokksfólki að koma ábendingum á framfæri og taka þátt í stefnumótun.

Talsmennirnir eru eftirfarandi:

Dagur B. Eggertsson er oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík og verður talsmaður flokksins um stjórn borgarinnar, fjármál og önnur málefni sem heyra undir borgarráð. Dagur er jafnframt talsmaður í skipulags- og samgöngumál, orkumálum og málefnum Árbæjarhverfis.

Björk Vilhelmsdóttir verður talsmaður í velferðarmálum, málefnum Faxaflóahafna og Laugardalshverfis.

Oddný Sturludóttir verður talsmaður menntamálum og menningarmálum og málefnum miðborgarinnar.

Sigrún Elsa Smáradóttir verður talsmaður í leikskólamálum, framkvæmdamálum og málefnum Háaleitishverfis.

Dofri Hermansson verður talsmaður í umhverfismálum og málefnum Grafarvogshverfis.

Stefán Jóhann Stefánsson verður talsmaður í íþrótta- og tómstundamálum, innkaupamálum og málefnum Breiðholtshverfis.

Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir verður talsmaður í mannréttindamálum.

Stefán Benediktsson verður talsmaður í málefnum Hlíðahverfis.

Felix Bergsson verður talsmaður í málefnum Vesturbæjarhverfis.

Gunnar H. Gunnarsson verður talsmaður í málefnum Kjalarness.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×