Innlent

Engar fyrirliggjandi breytingar á peningastefnu Seðlabankans

Forsætisráðherra segir ekkert liggja fyrir um breytingar á peningastefnu Seðlabankans, en segir engin lög það merkileg að ekki megi breyta þeim. Varðandi gagnrýni utanríkisráðherra á síðustu ríkisstjórn segir hann að kosningabaráttunni hafi lokið 12.maí.



Peningastefna Seðlabankans hefur oft verið gagnrýnd og nú síðast af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar um helgina. Hún sagði peningaastefnu bankans ekki virka sem skyldi og háir stýrivextir bitnuðu á þeim verst settu.

Geir H. Haarde forsætisráðherra segir viss vandkvæði fylgja því að búa í litlu og opnu hagkerfi þar sem fjárstreymi inn og útúr landinu sé frjálst. Málin séu í stöðugri endurskoðun og en slíkt verði að skoða mjög vel áður.



Ingibjörg Sólrún gagnrýndi einnig ráðherra úr síðustu ríkisstjórn fyrir að gefa skuldbindandi loforð úr ríkissjóði upp á tugi milljóni í aðdraganda kosninganna. Geir vildi lítið tjá sig um þá gagnrýni en sagði að kosningabaráttunni hefði lokið 12. maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×