Staða tjónþola bætt um milljónir kr. 25. september 2007 17:45 Kristján Möller kynnti frumvörp í ríkisstjórn.
Drög að lagafrumvörpum vegna breytinga á hafnalögum, siglingalögum og lögum um skipan ferðamála voru kynnt í ríkisstjórn í morgun og samþykkt að þau færu til umfjöllunar í þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna. Meðal annars á að stórbæta stöðu tjónþola við slys eða dauðsföll. Kristján L. Möller samgönguráðherra kynnti lagafrumvörpin í ríkisstjórn í morgun. Breytingin á siglingalögum tekur til ábyrgðar útgerðarmanna og takmörgun ábyrgðar og miða að því að uppfæra takmörkunarfjárhæðir í því skyni að bæta stöðu tjónþola. Þannig hækki ábyrgðartakmörk vegna hvers farþega sem slasast eða deyr úr 46.666 SDR í 175.000 SDR sem eru um 16,8 milljónir króna, fellt verði brott ákvæði um hámarksfjárhæð, takmörk vegna krafna vegna líkamstjóns hækka úr 333.000 í 2.000.000 SDR sem eru um 192 milljónir króna og ábyrgðartakmörk fyrir allar aðrar kröfur hækka í 1.000.000 SDR. Fyrirhuguð breyting á lögum um skipan ferðamála er til að lagfæra nokkur atriði og eru drög að þeim unnin í samráði við Ferðamálastofu en ný lög um skipan ferðamála gengu í gildi 1. janúar 2006. Er meðal annars lagt til að skerpa skilgreiningu á ferðaskipuleggjanda og ferðaskrifstofu, að leyfishöfum skuli skylt að nota auðkenni Ferðamálastofu og kveða skýrt á um það úrræði að lögregla skuli stöðva starfsemi að beiðni Ferðamálastofu ef leyfisskyld starfsemi er stunduð án leyfis. Þá er lögð til sú breyting á hafnalögum að sveitarfélögum verði heimilt að fresta styrktum hafnaframkvæmdum tímabundið meðan áhrifa af samdrætti aflamarks gætir en samkvæmt gildandi lögum eiga ný ákvæði að taka gildi 1. janúar 2009. Frumvarpið gerir ráð fyrir frestun til 1. janúar 2011.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Sjá meira