Innlent

Foreldrar kaupa málningu til veggjakrots

Víða um borgina eru veggir eins og þessi þar sem veggjakrotarar hafa látið til skarar skríða.
Víða um borgina eru veggir eins og þessi þar sem veggjakrotarar hafa látið til skarar skríða. MYND/Rósa Jóhannsdóttir

Dæmi eru um að foreldrar hafi mafi keypt málningu handa sonum sínum til veggjakrots í borginni. Þetta segja Einar Ásbjörnsson og Ásdís Haraldsdóttir, lögreglumenn í Grafarvogi, í hugvekju á vef lögreglunnar.

Þau benda á töluverð umræða hafi verið um veggjakrot að undanförnu enda hafi það verið meira áberandi nú en áður. „Kemur þar margt til, t.d. tilkoma internetsins þar sem þeir sem það stunda geta nú skipst á skoðunum og sýnt myndir af verkum sínum, jafnvel í skjóli nafnleyndar. Höfum við lögreglumenn í Grafarvogi sem víðar þurft að koma að málum þar sem eigendur bygginga og jafnvel bifreiða hafa orðið fyrir skemmdarvörgum sem hafa úðað þessar eigur fólks og valdið á þeim spjöllum sem kallað hafa á fjárútlát eigendanna," segja lögreglumennirnir.

Fram kemur í pistli þeirra að gerendurnir séu allt niður í ellefu ára og er foreldrum þeirra sem eru undir 18 ára tilkynnt um athæfið lögum samkvæmt. Foreldrarnir vita sumir af þessu og hafa talið það leyfilegt þar sem um hafi verið að ræða undirgöng, skóla og strætisvagnaskýli í eigu opinberra aðila. „Eru jafnvel dæmi um að foreldrar hafi keypt málningu til þessara verka fyrir barnunga syni sína," segja þau Einar og Ásdís.

Vekja þau athygli á því að eignaspjöll af þessum toga sem öðrum séu ekki leyfileg heldur er um saknæmt athæfi að ræða. Öll mannvirki séu eign einhverra, hvort sem um er að ræða opinbera aðila eða einkaaðila, og krefjast viðhalds á kostnað eigendanna. Það ætti að vera öllum ljóst að ekki er undir nokkrum kringumstæðum leyfilegt að valda öðrum tjóni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×