Verða að fá nægan aðlögunartíma og tungumálakennslu 25. september 2007 10:12 Elsa B. Friðfinnsson telur að tryggja þurfi erlendum hjúkrunarfræðingum nægan tíma til aðlögunar og góða íslenskukennslu. MYND/vilhelm
Formaður Félags hjúkrunarfræðinga gerir ekki athugasemdir við að til standi að ráða fleiri hjúkrunarfræðinga erlendis frá á Landspítalann svo framarlega sem hlutfall þeirra verði ekki of hátt og þeir fái nægan tíma til aðlögunar og góða íslenskukennslu. Greint var frá því í fréttum Stöðvar 2 í gær að Landspítalinn hefði sagt upp samningum við tvö íslensk þjónustufyrirtæki sem hafa séð Landspítalanum fyrir um 30 hjúkrunarfræðingum. Fram kom í máli Önnu Stefánsdóttur, hjúkrunarforstjóra Landspítalans, að til stæði að auglýsa eftir erlendum hjúkrunarfræðingum í staðinn þar sem það væri ódýrara auk þess sem betra væri að vera með fastráðið fólk. Um 90 hjúkrunarfræðinga vantar á spítalann. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags hjúkrunarfræðinga, tekur undir með hjúkrunarforstjóranum að betra sé að spítalinn sé með fastráðið starfsfólk. Hún segir aðkeyptu þjónustuna hafa verið dýra en varar jafnframt við of mikilli fjölgun erlendra hjúkrunarfræðinga hér á landi. „Það er mikilvægt að þeir hjúkrunarfræðingar sem hingað eru ráðnir fái nægan aðlögunartíma og góða kennslu í íslensku, annars getur það farið svo að álagið á þá sem fyrir eru aukist bara," segir Elsa. Hún segir nokkuð hafa verið um það að hjúkrunarfræðingar frá bæði Filippseyjum, Þýskalandi, Bretlandi og hinum norrænu ríkjunum hafi ráðið sig inn á spítalann. Þeim hafi gengið misjafnlega vel að aðlagast aðstæðum. Aðspurð um hvernig staðið sé að íslenskukennslu fyrir erlenda hjúkrunarfræðinga segir Elsa að þau mál séu ekki í góðum farvegi. Eftir því sem hún viti best bjóði Endurmenntun HÍ ekki lengur upp á sérhæfð íslenskunámskeið og þá sé langur biðlisti eftir íslenskukennslu hjá Mími. Þar þurfi að taka til hendinni. Hún bendir enn fremur á að auk íslenskukennslunnar þurfi ákveðna menningarbundnakennslu „því hjúkrunarfræðingar þurfa meðal annars að eiga samskipti við aðstandendur sjúklinga við andlát þeirra og það er erfitt fyrir þá sem ekki þekkja til menningar hér á landi," segir Elsa.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira