Innlent

Ekki vanhæfur til að fjalla um ráðningu frænda

Bæjarlögmaður Kópavogs hefur komist að þeirri niðurstöðu að skólanefndarfulltrúi hafi ekki verið vanhæfur til að að sitja afgreiðslu á ráðningu aðstoðarskólastjóra Smáraskóla. Lögmaðurinn mun senda bæjarstjórn Kópavogs niðurstöðu sína á morgun.

Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, óskaði eftir því að lögmaðurinn úrskurðaði hvort skólanefndarmaðurinn hefði verið vanhæfur til að sitja fund nefndarinnar þar sem ákvörðun var tekin um hver skyldi ráðinn aðstoðarskólastjóri Smáraskóla. Maðurinn sem ráðinn var í starfið og skólanefndarmaðurinn eru systkinabörn.

Þórður Þórðarson, bæjarlögmaður Kópavogs, mun senda bæjarstjórn niðurstöðu sína á morgun og samkvæmt öruggum heimildum fréttastofu mun niðurstaðan vera sú að skólanefndarmaðurinn hafi ekki verið óhæfur.

Vanalega telst hins vegar einstaklingur vanhæfur til að fjalla um mál svo náskyldra ættingja en í þessu tilfelli þá tók skólanefndarmaðurinn ekki þátt í viðræðum við umsækjendur. Þá mælti skólastjóri Smáraskóla með aðstoðarskólastjóra í starfið og var búið að tilkynna hver tæki við starfinu á heimasíðu skólans áður en skólanefndin tók það fyrir á fundi sínum.

Það túlkaði umræddur skólanefndarmaður sem svo að ekki hafi verið um eiginlega atkvæðagreiðslu um málið að ræða og að sömu niðurstöðu kemst bæjarlögmaður Kópavogs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×