Innlent

Stormviðvörun

Það er spáð leiðindaveðri í dag.
Það er spáð leiðindaveðri í dag.

Veðurstofan hefur sent frá sér stormviðvörun vegna djúprar lægðar sem er að nálgast landið. Spáð er að veðrið verði verst á sunnanverðu og suðaustanverðu landinu. Þar er spáð stormi í dag og sömuleiðis víða um land á morgun. Spáð er vaxandi austan- og norðaustanátt, með rigningu sunnantil, og að vindhraðinn fari í 20 til 25 metra á sekúndu syðst á landinu síðdegis og einnig suðaustanlands í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×