Innlent

Saka borgaryfirvöld um yfirgang

MYND/Doja

 

Íbúar við Ánanaust í Reykjavík segja að borgaryfirvöld hafi virt þá að vettugi með því að heimila landfyllingu í fjörunni fyrir framan hús þeirra. Um er að ræða jarðveg sem fellur til vegna framkvæmda við tónlistar- og ráðstefnuhús við Austurhöfnina. Þeir óttast verulegar raskanir á nánasta umhverfi og að jarðvegurinn sé mengaður.

„Borgaryfirvöld hafa gengið gróflega framhjá okkur," sagði Eiríkur Arnarsson, íbúi við Ánanaust, í samtali við Vísi. „Það hefur ekkert samráð verið haft við okkur og það á greinilega að ýta þessu í gegn án þess að tala við íbúa."

Um töluvert magn er að ræða og reiknast Eiríki þetta séu um 40 þúsund vörubílafarmar. Gert er ráð fyrir landfyllingu á svæðinu samkvæmt aðalskipulagi. Íbúarnir benda á að framkvæmdirnar nú séu mun fyrr á ferðinni og ekki í fullu samræmi við skipulag. Hafa þeir ennfremur óskað eftir umhverfismati.

Þá óttast íbúar við Ánanaust að jarðvegurinn sé mengaður og telja þeir einboðið að framkvæmdirnar á svæðinu muni valda miklum röskunum. „Þetta er fokgengt efni sem mun væntanlega fjúka yfir húsin okkar. Þá liggur ekki fyrir í hvað þeir ætla að nota svæðið," sagði Eiríkur.

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, býr að Vesturgötu 73. Í samtali við Vísi sagðist hann taka undir mótmæli íbúanna enda sé hann byltingarmaður að fornu fari.

Lýstu yfir vanþóknun á vinnubrögðum borgarinnar
Umdeild landfylling. Einar Arnarsson telur að hún muni líta svona út að loknum framkvæmdum.MYND/Einar/Google Earth

Íbúar sendu borgarráði bréf í lok síðasta júlímánaðar og óskuðu eftir skýringum frá borgaryfirvöldum. Í svari Ólafs Bjarnasonar, aðstoðarsviðsstjóra framkvæmdasviðs, er vísað í fyrirliggjandi aðalskipulag. Þá kemur fram að hugmyndir séu uppi um að nýta svæðið undir hverfisbækistöð.

Á fundi húsfélagsins Vesturgötu 69-73 sem haldinn var 11. september var áformum borgarinnar harðlega mótmælt. Lýst er yfir vanþóknun á vinnubrögðum borgarinnar og þeirri staðreynd að íbúar hafi ekki verið hafði með í ráðum.

Óskar Bergsson, formaður framkvæmdaráðs Reykjavíkurborgar, sagði í samtali við Vísi landfyllinguna vera í samræmi við aðalskipulag. Nú þegar væri búið að gefa út framkvæmdarleyfi og því yrði ekki breytt. Þá segir hann að ekki verði notast við mengaðan jarðveg í landfyllinguna. „Hins vegar er sjálfsagt að koma til móts við íbúa og takmarka ónæði af völdum framkvæmdanna."

Þá segir Óskar ekki þörf á mati á umhverfisáhrifum vegna framkvæmdanna. „Þetta er þriggja hektara landfylling. Samkvæmt lögum þá ber okkur aðeins tilkynna um svona landfyllingu ef hún er meiri en 5 hektarar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×