Innlent

Kompáslögmaður selur glæsivillu og flytur til Spánar

Kompáslögmaðurinn vill selja hús sitt í Fossvoginum enda fluttur í sólina á Spáni.
Kompáslögmaðurinn vill selja hús sitt í Fossvoginum enda fluttur í sólina á Spáni.

Kompáslögmaðurinn svokallaði, sem var til umfjöllunnar í fréttaþættinum Kompás á þriðjudagskvöldið, hefur sett glæsivillu sína í Fossvogi á sölu og er fluttur til Spánar. Þar dvelur lögmaðurinn ásamt fjölskyldu sinni og verður hann ekki viðstaddur þegar dómur gengur í máli hans í næstu viku.

Lögmaðurinn er ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fjórum ungum stúlkum. Eftir að ákæran leit dagsins ljós í vor þá keypti lögmaðurinn sér hús á Spáni og setti í kjölfarið villu sína í Fossvoginum á sölu fyrir tæpar 90 milljónir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×