Innlent

Séra Anna Sigríður Pálsdóttir fékk Dómkirkjubrauð

MYND/Daníel

Valnefnd í Dómkirkjuprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi vestra, ákvað á fundi sínum þann 19. september síðastliðinn að leggja til að sr. Anna Sigríður Pálsdóttir verði skipuð prestur í Dómkirkjuprestakalli. Sjö umsækjendur voru um embættið.

Embættið veitist frá 1. október 2007. Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að fenginni niðurstöðu valnefndar. Anna Sigríður Pálsdóttir lauk guðfræðiprófi frá HÍ 1996. Hún var skipaður prestur við Grafarvogsprestakall 1997 og vígð sama ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×