Innlent

Kaupmáttur eykst um 3,8 prósent

Launavísitala í ágústmánuði síðastliðnum reyndist 321,1 stig og hækkaði um 0,4 prósent frá fyrra mánuði. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Þar segir einnig að síðastliðna tólf mánuði hafi launavísitalan hækkað um átta prósent. Verðbólga síðustu tólf mánaða er 4,2 prósent og það þýðir að kaupmáttur hefur aukist um 3,8 prósent síðastliðna tólf mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×