Innlent

Aðalstjórn ÖBÍ mótmælir skerðingum

MYND/Hari

Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands mótmælir harðlega fyrirætlunum níu lífeyrissjóða um að skerða eða fella niður örorkulífeyri hjá annað þúsund öryrkjum og það kerfisbundna kjaraskerðingu hjá lægstu tekjuhópum samfélagsins.

Fram kemur í ályktun stjórnarinnar að margir sem verði fyrir skerðingu eða niðurfellingu hafi verið með á bilinu eina og hálfa milljón til 1700 þúsund krónur í tekjur á síðasta ári en frá og með nóvember muni tekjur sumra skerðast um allt að 40 þúsund krónur á mánuði. Eins og áður hefur komið fram hefur Öryrkjabandalagið falið lögmanni að undirbúa málaferli á hendur lífeyrissjóðunum vegna þessa.

Aðalstjórn Öryrkjabandalagsins kallar jafnframt ASÍ og Samtök atvinnulífsins til fullrar ábyrgðar á málinu enda stýri forsvarsmenn og fulltrúar þeirra samtaka jafnframt viðkomandi lífeyrissjóðum í sameiningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×