Innlent

Sluppu ómeiddir frá strandi

Tveir sjómenn sluppu ómeiddir þegar þriggja tonna trilla þeirra, Ella HF 22 strandaði á svonefndum Hrakhólma út af Álftanesi á tíunda tímanum í gærkvöldi.

Slysavarnafélagið Landsbjörg sendi þrjú björgunarskip á vettvang, en vegna sjógangs, myrklurs og skerja á svæðinu, var ekki hættandi á að þau sigldu að bátnum, heldur var lítill slöngubátur sendur frá þeim og voru mennirnir teknir um borð í hann. Ekki reyndist unnt að taka bátinn í tog, þar sem hann var skorðaður fastur á skerinu, en það verður reynt í dag, ef hann hefur staðist sjóganginn í nótt og er enn á staðnum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×