Óttast að vettvangsferðir leggist af 19. september 2007 18:31
Fræðslustjóri óttast að vettvangsferðir grunnskólanna leggist af ef grunnskólum verði gert að greiða fyrir þær. Dæmi eru um að slíkar ferðir kosti nemendur allt að 16 þúsund krónur. Menntamálaráðuneytið hefur séð sig knúið til að senda öllum grunnskólum landsins bréf þar sem 33. grein grunnskólalaga er áréttuð. Eins og við greindum frá í fréttum á dögunum þá snýst málið aðallega um skilgreiningu á viðbót við lagagreinina sem tók gildi um síðustu áramót og hljóðar svo: ,,Óheimilt er að taka gjald af nemendum vegna ferðalaga sem flokkast undir vettvangsnám eða eru að öðru leyti hluti af skyldunámi nemenda." Innan menntasviðs Reykjavíkurborgar er nú verið að fara yfir það hversu margar ferðir skólarnir á höfuðborgarsvæðinu fara og hve margar þeirra eru skilgreindar sem hluti af skyldunámi. Þá er menntasviðið einnig að láta kanna hvernig beri að skilja nýju lögin. Menntamálaráðuneytið segir hins vegar að allar ferðir sem farnar eru á skólatíma skuli vera nemendum að kostnaðarlausu og að svo hafi verið alla tíð en um það snýst deilan. Ragnar Þorsteinsson fræðslustjóri Reykjavíkurborgar óttast að ef skilgreining menntamálaráðuneytisins verði ofan á þá muni skólaferðum fækka verulega Á höfuðborgarsvæðinu eru skipulagðar margar ferðir innan grunnskólanna sem rukkað er fyrir. Þannig fara fjölmargir skólar í skíðaferðir, ferðir að Reykjum og haustferðir en litið svo á að þessar ferðir séu skemmtiferðir en ekki hluti af skyldunámi. Sumar af þessum ferðum, eins og til dæmis að Reykjum, kosta nemendur um 16 þúsund krónur og finnst mörgum foreldrum það ansi stór biti að kyngja. Ragnar segir hins vegar geta fullyrt að barni sé aldrei neitað um að fara í ferð vegna þess að það á ekki fyrir henni. Það sé alltaf fundin lausn á slíku.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira