Innlent

Ákærður fyrir tvær líkamsárásir

MYND/365

Tæplega tvítugur piltur hefur verið ákærður fyrir tvær líkamsárásir en báðar árásirnar áttu sér stað síðastliðið vor. Málið var dómtekið fyrir Héraðsdómi Vestfjarða í morgun.

Fram kemur í ákærunni að pilturinn hafi í Bolungarvík í síðastliðinum aprílmánuði skallað annan mann í andlitið og kýlt hann með þeim afleiðingum að hann hlaut bólgur yfir hægri kjálka og hægri gagnauga auk annarra meiðsla. Þá brotnaði einnig tönn.

Tæpum mánuði síðar réðst pilturinn á mann í Súðavík og sló hann einnig í andlitið. Maðurinn hlaut glóðurauga vinstra megin og mar á augnlokum. Einnig flísaðist úr vinstri framtönn í efri gómi. Þess er krafist í ákærunni að pilturinn verði dæmdur til refsingar og til greiðslu sakarkostnaðar. Þá er krafist skaðabóta upp á tæpar 680 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×