Innlent

Ráðuneytin fara fram úr fjárhagsáætlun

MYND/Lárus

Á fundi fjárlaganefndar Alþingis í morgun var tekin fyrir framkvæmd fjárlaga fyrstu sex mánuði ársins. Þar kom fram að 134 liðir af 434 eru komnir fram úr áætlun. Gunnar Svavarsson, formaður nefndarinnar, segir þetta aukningu frá því í fyrra þegar 106 liðir voru komnir fram úr á sama tíma.

Gunnar segir að óskað verði eftir skýringum frá fjármálaráðuneyti og hlutaðeigandi fagráðuneytum hvernig standi á framúrkeyrslunni.

Þá var fjallað um málefni Grímseyjarferjunnar á fundinum. Gunnar segir að lagt hafi verið upp með að skila sameiginlegu áliti nefndarinnar um málið. Það verði hins vegar að bíða til morguns þar sem ekki náðist samkomulag á milli fulltrúa stjórnar og stjórnarandstöðu. Nefndin hittist aftur á morgun og vonast Gunnar eftir því að samkomulag náist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×