Innlent

Varað við íslensku leiðinni

Framkvæmdastjóri samtaka veiðimanna á Grænlandi (KNAPK) varar í viðtali við grænlenska útvarpið sterklega við fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfi landsins. Það muni leiða til ástands eins og á Íslandi þar sem nokkrir barónar eigi allan kvótann.

Þetta kemur fram á Interseafood vefsíðunni. John Billmann framkvæmdastjóri KNAPK segir að samkvæmt núgildandi lögum sé framsal rækjukvóta leyft. Nýju lögin opni einnig fyrir verslun með aðrar tegundir. Það muni leiða Grænlendinga yfir í umhverfi eins og sé á Íslandi þar sem stórfyrirtæki eigi aflaheimildirnar. Slíkt megi ekki gerast á Grænlandi.

Billmann ræður grænlensku landsstjórninni frá því að samþykkja nýju lögin í óbreyttri mynd. Hann segir nauðsynlegt að undirbúa lagasetninguna miklu betur og að skipa verði fiskveiðinefnd sem fari yfir alla þætti málsins. Það þurfi að vega og meta þau áhrif sem boðaðar breytingar kunni að hafa í för með sér fyrir grænlenskan sjávarútveg.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×