Innlent

Ver barnaníðinga en sætir ákæru sjálfur um kynferðisafbrot

Lögmaður sem er ákærður um kynferðisafbrot gegn fjórum unglingsstúlkum hefur tekið að sér að verja meinta barnaníðinga þótt hann sæti sjálfur rannsókn vegna meintra kynferðisafbrota.

Í Kompás í kvöld kemur fram að snemma á þessu ári hafi tæplega sextugur lögmaður verið ákærður fyrir kynferðisafbrot gegn fjórum unglingsstúlkum, fjórtán og fimmtán ára gömlum.

Samkvæmt ákæru notaði lögmaðurinn Netið við að ná til stúlknanna þar sem hann sagðist vera sautján ára unglingspiltur.

Lögmaðurinn hefur í rúm tvö ár sætt rannsókn vegna þessara meintu brota en hefur haldið fram sakleysi sínu og haldið fullum réttindum sem lögmaður.

Sem verjandi meintra barnaníðinga hefur lögmaðurinn haft aðgang að viðkvæmum trúnaðarupplýsingum um börn og verið við skýrslutöku yfir þeim í Barnahúsi segir í Kompási.

Að mati Stígamóta er þessi staða ótæk en ekkert einsdæmi. Rúna Jónsdóttir talsmaður samtakana segir erfitt að hrófla við mönnum í áhrifa- og valdastöðum þótt þeir séu ákærðir fyrir kynferðisbrot.

Helgi Jóhannesson, formaður Lögmannafélags Íslands, telur ekki auðsótt að takmarka umsvif lögmanna sem eru ákærðir eða áskaðir um brot á lögum.

Fjallað verður nánar um þetta mál í Kompás á Stöð 2 í kvöld klukkan 21,45.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×