Innlent

Fáfnisfauti týndur

Jón Trausti var handtekinn á Leifsstöð þegar Hells Angels komu til landsins.
Jón Trausti var handtekinn á Leifsstöð þegar Hells Angels komu til landsins.

Jón Trausti Lúthersson, sem kenndur er við bifhjólasamtökin Fáfni, átti að mæta fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Samkvæmt heimildum Vísis er hann ákærður fyrir tvær líkamsárásir sem áttu sér stað í Keflavík.

Þingfesta átti málið gegn honum í dag. Lögreglan hefur ekki náð í hann til að birta honum ákæru og því er ekki hægt að taka mál hans á dagskrá.

Jón Trausti Lúthersson var í byrjun sumars dæmdur í 18 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir hrottalega árás. Hann hafði áður hlotið dóm fyrir að ryðjast inn á ritstjórn DV og ganga þar í skrokk á ritstjóra vegna óánægju með umfjöllun blaðsins um sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×