Lögreglan varar við svikapóstum 18. september 2007 15:34 MYND/AFP
Ríkislögreglustjóri hefur gefið út viðvörun vegna tölvupósta frá svikahröppum sem innihalda morðhótanir. Í póstunum er fólki hótað lífláti greiði það ekki háa upphæð inn á bankareikning erlendis. Nokkuð hefur borið á því að Íslendingar hafi fengið slíkar hótanir í gegnum tölvupóst að sögn lögreglu. Fólk er hvatt til að svara ekki þessum bréfum. Samkvæmt tilkynningu frá ríkislögreglustjóra er um að ræða nýja tegund ruslpósts sem kallast á ensku "hit man scam" eða "killer spam". Þessi tegund tölvupósts er kenndur við grein 419 sem er ákvæði í nígerískum hegningarlögum er varðar fjársvik. Alríkislögreglan í Bandaríkjunum, FBI, og New Scotland Yard í Bretlandi hafa fengið margar kvartanir frá fólki vegna þessara sendinga. Samkvæmt yfirmanni kvörtunarmiðstöðvar internetsins hjá FBI er þessum póstum ekki beint gegn fyrirfram ákveðnum aðilum og er ekki vitað til þess að fólk hafi tapað peningum á þessu eða að einhverjum hafi verið unnið mein. Í tölvupóstinum kemur fram að greiði viðtakandi tiltekna upphæð inn á bankareikninga erlendis þá verði lífi viðkomandi þyrmt. Svikahrapparnir beita ýmsum brögðum og er nýleg aðferð þeirra að senda tölvupóst í nafni erlendra lögreglustofnana eins og FBI. Þar kemur fram að nafn viðtakenda hafi fundist í fórum handtekins leigumorðingja sem myrt hafi einstaklinga í Bandaríkjunum og Bretlandi sem hafi skorast undan að borga féð sem krafist var fyrir að þyrma lífi þeirra. Er viðtakandi beðinn um að svara tölvupóstinum til að hjálpa við frekari rannsókn málsins. Svikahrapparnir velja netföng af handahófi og eins og öðrum "Nígeríubréfum" á alls ekki að svara þessum. Ef slíkum pósti er svarað halda hótanirnar áfram. Almenningi er bent á að leita til lögreglu ef þeim berst sambærilegur póstur og lýst er hér að framan.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Sjá meira