Reyna að forðast reynslulausn barnaníðings 18. september 2007 15:34 Lögfræðingur Ágústs Magnússonar, dæmds barnaníðings, segir lögregluna fresta rannsókn til að koma í veg fyrir reynslulausn skjólstæðings síns. MYND/GVA
Brynjar Níelsson, skipaður verjandi Ágústar Magnússonar, dæmds barnaníðings, segir að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu dragi að gefa út kæru á hendur honum til að koma í veg fyrir að hann fái reynslulausn úr fangelsi. Ekki er búið að gefa út ákæru á hendur Ágústi Magnússyni í svokölluðu Kompásmáli. Ágúst leitaði eftir kynferðislegu sambandi við manneskju sem sagðist vera 13 ára gömul. Búið er að ákæra þrjá aðra vegna sama máls en mál Ágústs situr á hakanum. Hann afplánar nú fimm ára fangelsisdóm vegna eldri brota en hefur átt rétt á að sækja um reynslulausn frá því í maí á þessu ári. Hins vegar er hægt að synja honum um reynslulausn á þeirri forsendu að mál hans sæti lögreglurannsókn og ekki sé búið að ákæra. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafnar því alfarið að rannsókn málsins sé vísvitandi dregin á langinn. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar, segir að rannsókn á máli Ágústar sé ólokið vegna þess að ekki sé búið að kanna hvort barnaklám sé á tölvu í hans eigu sem lögreglan hefur lagt hald á. Brynjar Níelsson hafnar skýringum lögreglunnar og segir ótrúlegt að það taki níu mánuði að kanna eina tölvu. Hann bendir á að einn hinna þriggja sem þegar hafi verið ákærðir séu einnig ákærðir fyrir vörslu barnakláms. Það hafi tekið mun skemmri tíma að kanna tölvu hans. Hann bendir einnig á að Kompásmálið og málið sem varðar vörslu barnakláms séu aðskild mál. Ekki sé nauðsynlegt að ákæra í þeim á sama tíma. Brynjar segir að jafnvel þótt Ágúst hafi gerst sekur um alvarleg brot verði hann að njóta réttar. Því sé hann verulega ósáttur við það að mál hans séu sett í biðstöðu. Mál Ágústar hefðu átt að vera sett í forgang svo hann gæti sótt um reynslulausn. Valtýr Sigurðsson fangelsismálastjóri segir að Ágúst hafi ekki sótt um reynslulausn. Hann myndi að sjálfsögðu fá rökstutt svar ef slík beiðni bærist. Valtýr segir að ekki sé verið að bíða með rannsókn málsins svo hægt sé að halda Ágústi lengur. Hins vegar megi efast um að Ágúst sé tilbúin til að fá reynslulausn. Hann geti verið líklegur til að brjóta af sér aftur og þurfi meiri tíma í fangelsi.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Fleiri fréttir Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjá meira