Innlent

Fékk fálkaorðu fyrir rannsóknir á náttúru Íslands

Forsetinn er skæður þegar hann vopnast fálkaorðunni.
Forsetinn er skæður þegar hann vopnast fálkaorðunni. Mynd/ Visir.is

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sæmdi í gær dr. Jack Ives riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir rannsóknir á náttúru landsins og samvinnu við íslenska fræðimenn.

„Dr. Jack Ives hefur í hálfa öld stundað víðtækar rannsóknir á Íslandi. Þar ber hæst framlag hans til Skaftafellsþjóðgarðsins, rannsókna í Öræfum og á íslenskum jöklum.

Á þessu ári kemur út bók eftir dr. Jack Ives sem helguð er fjörtíu ára afmæli þjóðgarðsins í fjallar hún um 1000 ára sögu Skaftafells. Dr. Jack Ives átti á sínum tíma víðtaka samvinnu við Ragnar Stefánsson í Skaftafelli og aðra Öræfinga,“ segir í tilkynningu frá forsetaembættinu.





 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×