Aðgerðarleysi tefur byggingu 17. september 2007 16:28 Jónmundur Guðmundsson, bæjarstjóri Seltjarnarness, Siv Friðleifsdóttir, þáverandi heilbrigðisráðherra, og Steinunn V. Óskarsdóttir, þáverandi borgarstjóri, við undirritun samkomulagsins árið 2006.
Allt bendir til þess að framkvæmdir vegna byggingu hjúkrunarheimilis við Eiðisgranda tefjist um eitt til tvö ár vegna aðgerðarleysis heilbrigðisráðuneytisins. Bæjarstjóri Seltjarnarness segir brýnt að framkvæmdirnar hefjist sem fyrst. Hann sendi heilbrigðismálaráðherra bréf fyrir þremur vikum þar sem óskað var eftir afstöðu hans til málsins. Ekkert svar hefur borist. „Framkvæmdirnar eru að tefjast um eitt til tvö ár miðað við núverandi gang málsins," sagði Jónmundur Guðmundsson, bæjarstjóri Seltjarnarness, í samtali við Vísi. „Það eru alvarleg tíðindi enda þörfin á hjúkrunarrými brýn." Í maímánuði í fyrra undirrituðu Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbær og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið þríhliða samkomulag um byggingu hjúkrunarheimilis á Lýsislóðinni við Eiðisgranda. Samkvæmt samkomulaginu lagði Seltjarnarnesbær til lóðina og 10 prósent af heildarkostnaði framkvæmdanna. Ráðuneytið greiddi 70 prósent og Reykjavíkurborg 20 prósent. Áttu framkvæmdirnar að hefjast á næsta ári. Um er að ræða hjúkrunarrými fyrir 90 einstaklinga. Ekkert hefur hins vegar heyrst frá heilbrigðisráðuneytinu vegna málsins síðan samkomulagið var gert. Óttast Jónmundur að stefnubreyting hafi átt sér stað hjá ráðuneytinu án þess að það hafi verið tilkynnt formlega. Hann sendi því heilbrigðisráðherra bréf þann 24. ágúst síðastliðinn þar sem óskað var eftir skýringum á töfum, afstöðu ráðherra til samkomulagsins og framvindu framkvæmdanna. „Af svörum embættismanna í fjölmiðlum virðist ráðuneytið ætla að efna samkomulagið en við bíðum hins vegar enn eftir svari við fyrirspurn okkar," sagði Jónmundur.
Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Innlent Fleiri fréttir Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Íslendingur lést vegna hitaslags Ókeypis veðmálasíður „ekki eins og áfengislaus bjór“ „Staðan er alvarleg en við vitum ekki hversu alvarleg hún er“ Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum Fagna sekt vegna veðmálaauglýsinga og tjón eftir vatnsveður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Sjá meira