Innlent

Sýndi löggunni beran afturendann

Lögreglan fékk beran afturenda eins góðborgara beint í andlitið um helgina.
Lögreglan fékk beran afturenda eins góðborgara beint í andlitið um helgina. MYND/EYÞÓR

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í mörg horn að líta um helgina og hafði alls afskipti af 46 einstaklingum sem brutu gegn lögreglusamþykktum Reykjavíkurborgar. Meðal annars var einn borgari tekinn fyrir að girða niður um sig buxurnar og bera á sér afturendann.

Fólkið hafði í frammi ýmiskonar ólæti og óspektir en því var boðið að ljúka málinu með sektargreiðslu. Margir tóku þann kostinn en meðal þess sem fólkið gerði af sér var að kasta af sér þvagi á almannafæri, fleygja rusli og brjóta flöskur eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. Einn átján ára piltur var tvívegis tekinn um helgina, fyrst fyrir að trufla störf lögreglunnar og hlýða ekki fyrirmælum aðfaranótt sunnudags. Hann lét þó ekki segjast því morgunin eftir var hann mættur í miðborgina og hélt uppteknum hætti. Hann var því handtekinn öðru sinni og látinn gista í fangageymslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×