Frávísunarkrafa olíufélaganna samþykkt 17. september 2007 15:43 Samsett mynd. Mynd/ Visir.is
Máli útgerðarfélagsins Dala-Rafns frá Vestmannaeyjum á hendur Keri og Olíuverslun Íslands var vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Lögmaður útgerðarfélagsins segir úrskurðinn koma mjög á óvart og býst við að hann verði kærður til Hæstaréttar. Skeljungur fór ekki fram á frávísun í málinu, heldur sýknu, en óljóst er hvort málið heldur áfram gegn félaginu. Krafa olíufélaganna um frávísun var byggð á óskýrum málatilbúnaði, óljósri aðkomu félaganna og að kröfur hafi verið ódómtækar. Telma Halldórsdóttir einn lögmanna Kers telur niðurstöðuna rétta. Málinu sé vísað frá þar sem það sé vanreifað. Hlynur Halldórsson lögmaður Dala-Rafns segir niðurstöðuna afar sérkennilega. Ákvörðun um framhald verði tekin eftir fund með skjólstæðingi hans. Hörður Felix Harðarson lögmaður Skeljungs telur forsendur úrskurðarins óljósar og segir að svo virðist sem dómari meti það þannig að um sé að ræða vanreifun sem varði upplýsingar sem snúi fyrst og fremst að þessum tveimur félögum. Mál útgerðarfélagsins Dala-Rafns gegn olíufélögunum var þingfest í héraðsdómi Reykjavíkur 12. júní. Mál útgerðarfélagsins byggir á að samráð olíufélaganna frá árinu 1993 til og með meginhluta ársins 2001 hafi valdið útgerðinni tjóni. Dala-Rafn krefst skaðabóta vegna samráðsins á þessum tíma, en á tímabilinu voru olíukaup útgerðarfélagsins að meðaltali um 10,5 prósent af heildarrekstrarkostnaði. Lögmenn Olís og Kers kröfðust þess að málinu yrði vísað frá. Þetta er fyrsta héraðsdómsmál útgerðarfélags á hendur olíufélögunum vegna samráðs þeirra og nemur aðalkrafa félagsins um 8,3 milljónum króna. Kristinn Hallgrímsson lögmaður Kers. Eyvindur Sveinn Sólnes lögmaður Olíuverslunar Íslands Áður hafði Sigurði Hreinssyni verið dæmdar 15 þúsund krónur í skaðabætur í Héraðsdómi í máli hans gegn Keri. Reykjavíkurborg hafði einnig verið dæmd 78 milljónir króna í bætur vegna skaða sem Strætó varð fyrir af völdum samráðs félaganna. Bæði málin bíða nú meðferðar hjá Hæstarétti. Um 200 einstaklingar og minni fyrirtæki bíða niðurstöðu í máli Sigurðar með það fyrir augum að höfða mál vegna samráðsins. Mál Olíufélaganna gegn samkeppniseftirlitinu bíður einnig úrskurðar Hæstaréttar vegna ágreinings um að dómkvaddir skuli matsmenn að beiðni eftirlitsins. Þangað til úrskurður fæst getur efnismeðferð ekki hafist.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira