Innlent

Tveir stöðvaðir vegna fíkniefnaaksturs

Tveir ökumenn voru teknir úr umferð í Reykjavík í gærkvöldi vegna aksturs undir áhrifum  fíkniefna. Annar var svo vankaður að ökumenn gerðu lögreglu viðvart um skrikkjótt ökulag hans. Í bíl hins, sem upphaflega var tekinn fyrir of hraðann akstur, fannst auk þess amfetamín. Engin ökumaður var hinsvegar tekinn úr umferð vegna neyslu áfengis í gærkvöldi eða í nótt.-



Fleiri fréttir

Sjá meira


×