Á fimmta tug erlendra ferðamanna meðal hinna látnu 16. september 2007 22:07 MYND/AP
Áttatíu og átta hið minnsta eru nú sagðir látnir eftir flugslysið á Phuket-eyju á Taílandi í morgun, þar af á fimmta tug erlendra ferðamanna. Alls voru 130 manns í vélinni sem var á vegum taílenska lággjaldaflugfélagsins One-Two-Go, 123 farþegar og sjö manna áhöfn. Yfirvöld hafa nú staðfest að yfir helmingur farþega var útlendingar, eða 78 manns, meðal annars frá Bretlandi, Frakklandi, Canada og Ástralíu. Þau gáfu í dag út lista þar sem fram kom að um 30 þeirra hefðu komist af. Um fjörutíu manns voru fluttir á sjúkrahús eftir slysið en fimm þeirra munu vera alvarlega slasaðir, þar á meðal bresk kona sem er brunnin á 60 prósentum líkamans. Þeir sem komust lífs af sögðu mikla skeflingu hafa gripið um sig eftir að vélin lenti á jörðinni, klofnaði í tvennt og það kviknaði í henni. Fólk hefði klöngrast hvert yfir annað í þeirri von að komast út áður en eldurinn næði til þess. Flugmálayfirvöld segja að of snemmt sé að segja til um orsök slyssins en líklegt sé að slæmt veður á flugvellinum hafi haft áhrif. Flugstjórinn hafði reynt lendingu en hætti við á síðustu stundu. Þegar hann hugðist hífa vélina aftur upp skall hún í jörðinni. Vélin var að koma frá Bangkok og hugðust margir farþeganna dvelja á Phuket-eyju sem er vinsæll ferðamannastaður hjá bæði Taílendingum og Vesturlandabúum.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Sjá meira