Samgönguvika sett í borginni 16. september 2007 15:45
Samgönguvika Reykjavíkurborgar var sett með formlegum hætti í Perlunni í dag þar sem jafnframt voru veitt verðlaun í Kappakstrinum mikla sem fram fór í borginni í síðustu viku. Það var Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfisráðs, sem setti samgönguvikuna og afhenti hverfinu Miðborg/Hlíðar Samgöngublómið. Í því felst að í hverfinu verður unnið að ýmsum verkefnum tengdum samgöngum í samvinnu við skóla, hverfisráð, foreldrafélög og ýmis fyrirtæki og stendur verkefnið fram að næstu samgönguviku eftir ár. Þá verður afrakstur vinnunnar opinberaður. Í samgönguvikunni verður boðið upp á alls kyns fyrirlestra og fundi sem snúa að samgöngum og þá munu tónlistarmenn troða upp í strætisvögnum. Vikunni lýkur svo næstkomandi laugardag með hóphjólreiðum úr hverfum borgarinnar niður í Nauthólsvík og þaðan í Ráðhúsið. Þar fer svo fram hin árlegi Tjarnarsprettur sem er hjólreiðakeppni þar sem hjólað er í kringum Tjörnina. Í Perlunni voru jafnframt veitt verðlaun í Kappakstrinum mikla sem Orkuveita Reykjavíkur hélt í samstarfi við Verkfræðistofnun Háskóla Íslands á fimmtudaginn. Ólíkt hefðbundnum kappökstrum var ekki markmiðið að aka sem hraðast heldur að nota sem minnsta orku á tiltekinni leið. Leiddir voru saman á fjórða tug umhverfisvænna bíla sem ýmist ganga fyrir etanóli, rafmagni, metani, dísilolíu eða bensíni. Alls var keppt í níu flokkum og veitti Kristján L. Möller samgönguráðherrra þeim hlutskörpustu verðlaunin.
Mest lesið Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Innlent Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Erlent Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Innlent „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Innlent Bíll konunnar sást á upptöku Innlent Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Innlent Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Innlent Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Innlent Fleiri fréttir Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Skoða að flýta aðgerðum í húsnæðismálum til að ná tökum á verðbólgunni „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Hraðbankinn ófundinn, hungursneyð og skólar hefjast Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Bíll konunnar sást á upptöku Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Líta málið „mjög alvarlegum augum“ Hella áfenginu niður og hringja í foreldra Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Rigning og rok í methlaupi Sleppt úr gæsluvarðhaldi en málið enn til rannsóknar Hlaup hafið úr Hafrafellslóni Hungursneyð lýst yfir og forsætisráðherra segir alþjóðasamfélagið ráðalaust Aðstoðar allt að fimmtán ára gömul börn að hætta með bleyju Hungursneið á Gasa, strokulaxar og metþátttaka í Reykjavíkurmaraþoni Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Áfall fyrir RIFF Skipar samningateymi um uppbyggingu Víkings á Markarsvæði Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Tillaga um að stækka Hótel Flatey felld Landsmenn allir harmi slegnir Sósíalistar og Rússlandsvinir undir eitt þak „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Bærinn hefur afhent lögreglu myndefni í tengslum við hraðbankaránið Sjá meira