Innlent

Velti jeppa við Hraunaveitur

MYND/GVA

Ökumaður jeppa var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur í gærkvöld eftir að jeppi hans valt í hálku skammt frá Hraunaveitum Kárahnjúkavirkjunar. Maðurinn var fyrst fluttur á sjúkrahúsið á Egilsstöðum en þar sem hann var með höfuðáverka var ákveðið að flytja hann með flugvél til Reykjavíkur og dvelur hann nú á Landspítalanum í Fossvogi. Að sögn vakthafandi læknis þar eru áverkarnir ekki alvarlegir og verður hann útskrifaður í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×