Innlent

Eldur læsti sig í kertaskreytingu

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að húsi í Hraunbæ í Árbæ um klukkan hálfellefu í gærkvöld vegna elds í íbúð. Þar hafði eldur af kerti læst sig í plast í kertaskreytingu sem heimilisfólk hafði gleymt einhverja stund. Engan sakaði í brunanum en að sögn slökkviliðs þurfti að reykræsta íbúðina. Ekki urðu þó miklar skemmdir á henni.

Þá var slökkviliðið að störfum til klukkan ellefu í gærkvöld á Kjósarskarðsvegi vegna olíuflutningabíls sem valt þar í gærdag. Lítil olía lak úr bílnum en þeirri olíu sem var á bílnum, um átta tonnum, var dælt yfir á annan olíuflutningabíl. Bíllinn sem valt svo fluttur af vettvangi. Loka þurfti Kjósarskarðsvegi í nokkrar klukkustundir vegna slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×