Innlent

Lítill drengur slasaðist þegar hann datt ofan í skurð

Jón Hákon Halldórsson skrifar

Fimm ára gamall drengur var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa hjólað ofan í skurð við Kambshraun í Hveragerði um þrjúleytið í dag. Þar er verið að grafa fyrir hitaveitulögnum. Strákurinn var með hjálm á höfðinu en lenti með andlitið í malbiksbrún og skar sig töluvert. Hann gekkst því undir lýtaaðgerð um leið og hann kom á sjúkrahús.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×