Innlent

Fráfarandi formaður höfðar mál á hendur ríkinu

Borgar Þór Einarsson fráfarandi formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna hyggst höfða mál á hendur flokksbróður sínum Árna Mathiesen fjármálaráðherra, fyrir hönd íslenska ríkisins, vegna opinberrar birtingar álagningarskráa.

Þetta tilkynnti Borgar í setningarræðu sambandsþings SUS á Seyðisfirði fyrir nokkrum mínútum. Sambandið telur að birting álagningarskrár sé brot á friðhelgi einkalífsins og stjórnarskrárbrot. Undirbúningur að málshöfðun hefur staðið yfir í nokkrar vikur og hyggst Borgar reka málið sjálfur fyrir dómi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×