Gruna Lyf og heilsu um að misnota markaðsráðandi stöðu 14. september 2007 14:29 Verslun Lyfja og heilsu. MYND/365
Grunur leikur á að lyfjaverslunarkeðjan Lyf og heilsa hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína á Akranesi í samkeppni við Apótek Vesturlands. Samkeppniseftirlitið gerði húsleit á skrifstofum fyrirtækisins í morgun. Um eðlilega samkeppni að ræða segir í yfirlýsingu frá Lyfjum og heilsu. Í yfirlýsingu sem Guðni B. Guðnason, framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu, sendi frá sér í dag kemur fram að húsleit Samkeppniseftirlitsins á skrifstofum félagsins í morgun hafi verið gerð vegna gruns um að fyrirtækið hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína í samkeppni við Apótek Vesturlands á Akranesi. Í yfirlýsingunni segir að samkeppnisaðili Lyfja og heilsu hafi opnað apótek sitt þann 1. júlí síðastliðinn og leggi áherslu á lágt verð. Lyf og heilsa hafi mætt þeirri samkeppni með lækkun á álagningarprósentu sinnar á um tveimur hundruðustu af vörutegundum sínum á Akranesi. Að mati Lyfja og heilsu er fráleitt að kalla slíkt misnotkun á markaðsráðandi stöðu í bæjarfélaginu og telur augljóst að verðlækkunin sé einfaldlega eðlileg viðbrögð við nýrri og öflugri samkeppni. Þá segir ennfremur í yfirlýsingunni að Lyf og heilsa muni aðstoða Samkeppniseftirlitið í hvívetna við athugun þess og leggja þannig sitt af mörkum til þess að niðurstaðan fáist í málinu sem allra fyrst. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, staðfesti í samtali við Vísi að húsleit hefði verið gerð á skrifstofu Lyfja og heilsu í Reykjavík og í apóteki fyrirtækisins á Akranesi. „Rannsóknin beinist að því hvort Lyf og heilsa hafi hindrað samkeppni með ólögmætum hætti,“ sagði Páll.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Sammála því að erfitt haust sé í vændum Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fleiri fréttir Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Sjá meira