Bréf Landsvirkjunnar er ekki ítrekun heldur beiðni um nýja rannsókn 2. september 2007 12:59 Ingólfur Jóhannsson formaður SUNN.
Ingólfur Jóhannsson formaður SUNN, Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi, segir að bréf það sem Landsvirkjun sendi iðnaðarráðuneytinu í vor um Gjástykki sé ekki ítrekun heldur beiðni um nýja rannsókn. Þetta sé augljóst ef rýnt er í gögn málsins, sem samtökin fengu frá iðnaðarráðuneytinu fyrr í sunmar. "Landsvirkjun kvartar undan því í fjölmiðlum að Landvernd og SUNN hafi ekki kynnt sér mál og telur að umsókn þeirra 8. maí sé eingöngu ítrekun," segir Ingólfur. "Ef rýnt er í gögn málsins, sem samtökin fengu frá iðnaðarráðuneytinu fyrr í sumar, sést að bréf Landsvirkjunar 8. maí er ekki aðeins ítrekun heldur og ný umsókn um rannsóknarboranir, og að minnsta kosti ein af þeim umsögnum sem aflað hafði verið er skilyrt því að hún sé ekki um boranir." Ingólfur segir að SUNN telji því í hæsta máta óeðlilegt að skoða ekki málið betur en tími var til á tveimur dögum. "Við teljum málið það alvarlegt að Alþingi þurfi að skoða hvort hér er eðlilegt stjórnsýsla á ferðinni," segir hann. Á bloggsíðu sinni fjallar Ingólfur um málið og segir þar m.a. að það sé athyglisvert að í umsögn Orkustofnunar frá október 2004 er sérstaklega tekið fram að umsögnin sé um leitarrannsóknir, ekki rannsóknarboranir. Í bréfi Landsvirkjunar 8. maí í vor er svo aftur sérstaklega tekið fram að yfirborðsrannsóknum sé "að mestu lokið á svæðinu og næsta skref í rannsóknum þar [sé] borun rannsóknarhola". Hér er því verið að sækja um annað en áður var sótt um og full ástæða að mínum dómi til að fá nýjar umsagnir, a.m.k. í þeim tilvikum sem hinar eldri voru skilyrtar.
Mest lesið Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Erlent Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Innlent Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Innlent „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Innlent Fleiri fréttir Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Sjá meira