Vilja láta reka heilu innflytjendafjölskyldurnar úr landi 31. ágúst 2007 23:05 Stærsti stjórnmálaflokkur Sviss vill losa sig við útlenda glæpamenn og foreldra þeirra.
Stærsti stjórnmálaflokkur Sviss hefur boðað mjög umdeilda lagasetningu sem gerir yfirvöldum kleift að senda heilu innflytjendafjölskyldurnar úr landi gerist einn fjölskyldumeðlimurinn brotlegur við lög. Þjóðaratkvæðagreiðslu þarf til svo lögin geti tekið gildi en Svissnesski þjóðarflokkurinn hefur legið undir miklum ámæli vegna málsins og er sakaður um kynþáttahatur. Ef lögin ná fram að ganga verður hægt að reka heilu fjölskyldurnar úr landi gerist einhver þeirra brotlegur við lög. Glæpirnir sem um ræðir eru ofbeldis- og fíkniefnaglæpir og bótasvik. Ekkert land í Evrópu hefur sett lög af þessu tagi en nasistar í Þýskalandi fyrir stríð komu á svipuðum lögum. Á plakati sem flokkurinn hefur látið gera er mynd af þremur hvítum kindum að sparka út svartri kind og er slagorðið: „Til öryggis". Flokkurinn heldur því fram að innflytjendur séu fjórum sinnum líklegri til þess að fremja glæp en innfæddir Svisslendingar. Formaður flokksins, Uli Maurer segir að flokksmenn séu þeirrar skoðunnar að foreldrar beri ábyrgð á börnum sínum. „Ef þeir geta ekki alið þau upp á réttan hátt verða þeir að taka afleiðingunum. " Flóttamannanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur þegar lýst því yfir að lögin brjóti í bága við flóttamannasáttmála SÞ og að þau stangist einnig á við mannréttindastefnu Evrópusambandsins og raunar stjórnarskrá Sviss. Flokkurinn reynir nú að afla þeirra 100 þúsund undirskrifta sem þarf til að vísa málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira