Hafa afsalað sér hlutverki sínu 31. ágúst 2007 19:05
Samfylkingin hefur afsalað sér því hlutverki að vera höfuðandstæðingur Sjálfstæðisflokksins í íslenskum stjórnmálum, segir formaður Vinstri grænna. Hann skaut föstum skotum á Samfylkinguna á flokksráðsfundi Vinstri grænna í dag en sagði Sjálfstæðisflokkinn þó áfram höfuðandstæðinginn. Flokksráðsfundur Vinstri-grænna kom saman til fundar á Hótel Flúðum í dag. Tilgangur fundarins var meðal annars að ræða nýtt landslag í íslenskum stjórnmálum en þetta er fyrstu fundur flokksráðsins eftir Alþingiskosningar. Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, sagði í ræðu sinni að Vinstri-grænir hafi tekið afgerandi stöðu sem þriðji stærsti stjórnmálaflokkurinn eftir kosningar í vor þar sem flokkurinn hafi bætt verulega við fylgi sitt. Tilfinningar flokksmanna hafi verið blendnar eftir kosningar þar sem sigurinn hafi ekki verið eins stór og margir vonuðust til og vonbrigði hafi verið að flokkurinn hafi ekki komist í ríkisstjórn. Hann gerði einnig að umtalsefni ásakanir um að hann hefði sjálfur klúðrað því að flokkurinn hafi náð að tryggja sér sæti í ríkisstjórn. Hann sagðist efast um að nokkru hefði breytt ef hann hefði gert eitthvað á annan hátt. Sterk öfl innan Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar hafi unnið ötullega að því bak við tjöldin fyrir kosningarnar að mynda ríkisstjórn. Steingrímur skaut föstum skotum að Samfylkingunni sem hann sagði hafa skort úthald og kjark til að varðveita þá stöðu flokksins að vera eiginlegt mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn. Hann sagði Sjálfstæðisflokkinn þó áfram vera höfuðandstæðing Vinstri-grænna en ekki Samfylkinguna og lofaði öflugri stjórnarandstöðu. Vinstri-grænir væru tilbúnir að taka til varna ef einkavæðingarvaltarinn fer næst að rúlla yfir heilbrigðismálin.
Mest lesið Skaust inn með tómata og fékk enn eina sektina Innlent Miðflokki fatast flugið Innlent Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Innlent Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið Innlent Lausir endar í Edition-málinu Innlent „Dylgjur um menntastig“: Túlkun afbrotatölfræði innflytjenda þarfnist þekkingar Innlent Sambandið við Evrópu þurfi ekki að vera já eða nei spurning Innlent Vara við krefjandi aðstæðum á höfuðborgarsvæðinu Innlent Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Erlent Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Erlent Fleiri fréttir Ný bráðamóttaka að taka á sig mynd Miðflokki fatast flugið Vökuliðar frestuðu afgreiðslu á vantrauststillögu Samgöngustofa ógildir skoðanir á gúmmíbjörgunarbátum Tímamót og glæný könnun Vara við krefjandi aðstæðum á höfuðborgarsvæðinu „Dylgjur um menntastig“: Túlkun afbrotatölfræði innflytjenda þarfnist þekkingar Reykjadalur fær ekki styrki og fellir niður hluta starfsins Guðmundur Ingi í formlegar viðræður við Vor til vinstri Tekinn í tollinum með tíu kíló af ketamíni Reyna að hnýta lausa enda sem allra fyrst Endurnýjuðu gæsluvarðhald yfir grunuðum barnaníðingi Krafa að fá slökkvistöð í bæinn Fjögur ár frá innrás Rússa og milljarðar bætast í ríkiskassann Sólveig Anna furðar sig á kjörum borgarstjóra Lausir endar í Edition-málinu „Við erum að vinna með fólki sem hefur lent í miklum áföllum“ Hefði þótt skrítið að senda alla sjúkrabíla með vatnsbrúsa Biðja fólk um að fóðra ekki fuglana í kirkjugörðunum Sambandið við Evrópu þurfi ekki að vera já eða nei spurning Skaust inn með tómata og fékk enn eina sektina Fjörutíu milljarða greiðsla Kerecis snýr halla á ríkissjóði í afgang Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Stór hluti hærra skrásetningargjalds fari í að borga veitingareikning HÍ Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið „Hverju eru þau að leyna? Hvað hafa þau að fela?“ Vopnin ekki til að drepa, heldur verja „Mikið áfall að vera allt í einu komin með eld í bakgarðinn“ Áfall að vera með eld í bakgarðinum Umferðartafir á meðan rútunni er komið burt Sjá meira