Vildi láta lögguna hræða strákinn 30. ágúst 2007 20:43 MYND/Heiða
Lögregla var kölluð að heimili í borginni í gær vegna ófriðar sem orsakaðist af því unglingnum á heimilinu var meinað að fara á MSN í tölvunni. Að sögn lögreglu hefur tilfellum af þessu taginu fjölgað. Móðir unglingsins bað lögregluna um að „hræða" soninn, en við því var ekki orðið enda ekki í verkahring embættisins að sögn lögreglu. Síðdegis í gær voru lögreglumenn kallaðir að heimili á höfuðborgarsvæðinu en þar hafði kastast illilega í kekki hjá móður og syni hennar á unglingsaldri. „Málavextir voru á þá leið að strákurinn hugðist vera í MSN í tölvunni en það er velþekktur samskiptamáti á netinu," segir í tilkynningu frá lögreglu. „Móðirin hafði hins vegar falið honum það hlutverk að taka leirtauið úr uppþvottavélinni. Þeim tókst ekki að ná samkomulagi um að forgangsraða hlutunum og svo fór að strákurinn missti stjórn á skapi sínu. Hann skemmdi eitthvað af húsgögnum á heimilinu og fór svo út í fússi." Drengurinn var því ekki heima þegar lögreglu bar að garði en móðirin bað lögreglumenn um að hræða strákinn, ef það væri til þess fallið að hann bætti ráð sitt. „Til þess kom ekki enda er það tæpast hlutverk lögreglunnar," segir að lokumk í tilkynningunni.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Fleiri fréttir Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Sjá meira