Innlent

Þrjú umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu á svipuðum tíma

Þrjú umferðaróhöpp urðu á höfuðborgarsvæðinu á svipuðum tíma nú fyrir skömmu síðan. Tvær litlar rútur skullu saman í Lönguhlíð, Fjórir bílar rákust saman á Höfðabakkabrú og á Strandgötu í Hafnarfirði varð árekstur og er sjúkralið á leið á staðinn.

Litlar fréttir hafa borist af óhöppunum sem stendur en að sögn lögeglu hefur mikil umferðarteppa skapast í Lönguhlíðinni efir rútuáreksturinn. Ekki er talið að fólk hafi slasast þar og ekki er vitað hvort rúturnar hafi verið með þarþega innanborðs.

Áreksturinn á Strandgötu varð fyrir utan Fjörukránna og þar var kallað á sjúkralið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×