Innlent

Hættuleg eiturefni fundust í höfuðstöðvum SÞ

MYNd/Getty

Nokkur glös með eiturefnum hafa fundist í höfuðstöðvum Sameinuðu Þjóðanna í New York. Á meðal efna sem fundust var taugagasið phosgene en talið er að efnin hafi verið flutt frá Írak þegar fulltrúar SÞ framkvæmdu eiturefnaleit í landinu fyrir áratug síðan.

Efnin fundust síðan á dögunum þegar verið var að hreinsa til á skrifstofu nálægt aðalbyggingunni. Talsmaður SÞ segir að vissri hættu hefði getað stafað af efnunum en að sú hætta hafi ekki verið aðsteðjandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×