Innlent

Orkuveita Reykjavíkur verði hlutafélag

Heimir Már Pétursson skrifar

Orkuveitu Reykjavíkur verður breytt í hlutafélag, nái tillögur meirihlutans í borgarstjórn fram að ganga. Afgreiðslu málsins var frestað á stjórnarfundi orkuveitunnar í dag að ósk minnihlutans, en aðalmenn hans gátu ekki setið fundinn.

Orkuveita Reykjavíkur er í eigu Reykjavíkurborgar sem á 93,5 prósent, Akraneskaupstaðar sem á 5,5 prósent og Borgarbyggðar sem á eitt prósent í fyrirtækinu. Á stjórnarfundi í dag lögðu stjórnarfulltrúar meirihlutans fram tillögu um að Orkuveitan verði gerð að hlutafélagi í eigu sveitarfélaganna.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri segir að hlutafélagaformið henti mun betur til þessa rekstrar og minnir á að Reykjavíkurlistinn hafi verið langt kominn með að gera Orkuveituna að hlutafélagi fyrir kosningar.

Dagur B. Eggertsson fulltrúi Samfylkingarinnar og Svandís Svavarsdóttir fulltrúi Vinstri grænna í stjórn Orkuveitunnar gagnrýna að þessi tillaga sé lögð fram án nokkurrar umræðu í borgarstjórn. Þau óskuðu eftir því að stjórnarfundi yrði frestað, ekki hvað síst vegna þess að þau voru stödd á Ísafirði á fundi hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, en stjórnarformaður Orkuveitunnar hafnaði þeirri ósk. Á stjórnarfudinum var hins vegar ákveðið að fresta formlegri afgreiðslu tillögunnar fram yfir helgi.

Dagur segir að Orkuveitan eigi fyrst og fremst að tryggja borgarbúum ódýra orku og stuðla þannig að samkeppnishæfni annarra fyrirtækja. Svandís segir að ekki hafi verið kosið um hlutafélagavæðingu Orkuveitunnar í síðustu kosningum og þessi málatilbúnaður sýni lítinn skilning á lýðræðinu hjá borgarstjóra og hans fylgisfólki.

Í sameiginlegri yfirlýsingu Dags og Svandísar segir að erfitt sé að skilja þessa atburðarrás öðru vísi en sem upptakt að einkavæðingarferli Orkuveitunnar. Borgarstjóri minnir hins vegar á að mörg önnur orkufyrirtæki séu rekin á hlutafélagsforminu.

Borgarstjóri segir hins vegar eðlilegt að Orkuveitan sé rekin á sama rekstrarformi og önnur orkufyrirtæki. Það standi ekki til að einkavæða Orkuveituna og verði ekki gert á meðan hann sé borgarstjóri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×