Fresta tillögu um hlutafélagavæðingu vegna orða minnihlutans 30. ágúst 2007 14:46 MYND/Róbert
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti það á fundi sínum fyrir stundu að beina því til eigenda fyrirtækisins, Reykjavíkurborgar, Akranesbæjar og Borgarbyggðar, að hlutafélagavæða fyrirtækið. Það er nú sameignarfélag. Samþykkt var að fresta því að afgreiða tillöguna en samþykkt að senda hana fjölmiðlum þar sem fjarstaddir aðalmenn í stjórn, sem þó höfðu boðað varamenn sína, hefðu kosið að gera hana tortryggilega eins og segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Fyrr í dag gerðu Dagur B. Eggertsson og Svandís Svavarsdóttir, fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstri - grænna í stjórn Orkuveitunnar, athugasemdir við að málið væri tekið fyrir án undangenginnar umræðu. Enn fremur kemur fram í tilkynningu Orkuveitunnar að fundur hafi verið boðaður í stjórn Orkuveitunnar á mánudaginn kemur vegna málsins. Ekki verður einkavætt Meririhlutinn í stjórn Orkuveitunnar lét bóka að verði tillagan samþykkt felist í því sóknarfæri fyrir Orkuveitu Reykjavíkur, hér á landi sem erlendis en engin áform séu hjá núverandi eigendum um sölu á eignarhlutum sínum. „Engar tillögur liggja fyrir um einkavæðingu fyrirtækisins og verða ekki fluttar af núverandi stjórn," segir í bókuninni. Í bókuninni segir enn fremur að núverandi sameignarfélagsform leggi óþarflega miklar ábyrgðir á eigendur fyrirtækisins um leið og skýr merki séu um að það sé farið að verða Orkuveitunni fjötur um fót í rekstri sínum, sérstaklega þeim hluta hans sem er á samkeppnismarkaði. Meirihlutinn segist enn fremur munu beita sér fyrir málefnalegri umræðu á vettvangi sveitarstjórnanna og öðrum opinberum vettvangi um rekstrarform fyrirtækisins. Þá segir í tilkynningu Orkuveitunnar að vegna yfirlýsingar Dags B. Eggertssonar og Svandísar Svavarsdóttur varðandi undirbúning stjórnarfundar Orkuveitunnar sé rétt að það komi fram að: · Rekstrarform Orkuveitu Reykjavíkur er málefni sem er á ábyrgð eigenda fyrirtækisins og löggjafans. · Tillagan, sem lögð var fram á fundi stjórnar OR í dag, felur í sér tilmæli til eigenda um að taka málið upp á sínum vettvangi. · Eðli málsins samkvæmt koma tilmæli stjórnar OR til kasta þeirra Dags B. Eggertssonar og Svandísar Svavarsdóttur o í borgarráði Reykjavíkur o í borgarstjórn Reykjavíkur o á eigendafundi Orkuveitu Reykjavíkur. Möguleikar kjörinna fulltrúa til að taka þátt í þeirri opinberu umræðu sem nauðsynleg er um rekstrarform Orkuveitu Reykjavíkur séu því miklir.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Fleiri fréttir Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Sjá meira