Innlent

Bretar fagna ákvörðun sjávarútvegsráðherra um hvalveiðar

Breski umhverfisráðherrann, Phil Woolas, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann fagnar ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra um að gefa ekki út frekari kvóta til hvalveiða. "Við fögnum þessari hugrökku og gáfulegu ákvörðun og vonum að þetta verði til að hvalveiðum verði hætt í framtíðinni," segir Woolas.

Woolas tekur m.a. fram í yfirlýsingu sinni að Ísland sé lykilland hvað varðar hvalaskoðun og telur að þær þúsundir manna sem stundi slíkt á hverju ári muni taka ákvörðun Einars fagnandi.

"Íslenski hvalaskoðunariðnaðurinn getur nú haldið áfram að vaxa og dafna án þess að skuggi hvalveiða falli þar á," segir Woolas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×