Guðlaugur Þór segir íslenska lyfjamarkaðinn ekki virka sem skyldi 29. ágúst 2007 21:15
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, átti í gær og fyrradag fundi með tveimur framkvæmdastjórum Evrópusambandsins. Guðlaugur hitti þá Günter Verhaugen sem fer með lyfjamál og Makros Kyprianou, sem fer með heilbrigðismálin fyrir hönd framkvæmdarstjórnarinnar. Fundirnir fóru fram í Brussel. „Á fundunum var staða lyfjamála á innri markaði Evrópusambandsins, sem nær einnig til Íslands á grundvelli samningsins um Evópska efnahagssvæðið, rædd," segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Vakti heilbrigðisráðherra sérstaka athygli á vanda sem minni markaðssvæði eins og Ísland eiga við að glíma í því sambandi en Guðlaugur benti á að markaðurinn væri ekki að virka sem skyldi á Íslandi og öðrum minni markaðssvæðum. „Lyfjaverð væri hærra á Íslandi en gerist og gengur á hinum Norðurlöndunum og langt yfir meðallyfjaverði í ríkjum Evrópusambandsins, auk þess sem lyfjaframboð á Íslandi væri með öðrum hætti en í stærri ríkjum markaðssvæðisins," segir í tilkynningunni. Þá segir að í máli framkvæmdastjóranna beggja hafi komið fram mikill skilningur á þessum vanda. „Meðal annars var rætt um stofnun sérstakrar vinnunefndar til að móta tillögur að lausn vandans og leggja fyrir Framkvæmdastjórn ESB. Ísland mun fá aðild að þessari vinnunefnd sem mun væntanlega starfa á grundvelli þeirrar vinnu sem nú fer fram á vettvangi Evrópusambandsins varðandi lyfjaiðnaðinn og lyfjamarkaðinn í heild sinni." Guðlaugur Þór vakti einnig athygli á því að breytingar á evrópsku lyfjalöggjöfinni, sem áttu sér stað árið 2004, væru enn ekki komnar í EES samninginn. „Voru aðilar sammála um að hraða bæri því ferli sem kostur væri, enda væri þar að finna aukinn sveigjanleika sem hægt væri að nýta til að koma að einhverju leyti til móts við umræddan vanda á litlum markaðssvæðum."
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira