Dómnefnd fyrir Kvosina skilar vonandi tillögum í næstu viku 29. ágúst 2007 16:04 Vinnuvélar eru þegar byrjaðar að rífa rústir Austurstrætis 22 þar sem borgin og eigendur hússins komust ekki að samkomulagi um að borgin keypti húsið. MYND/Stöð 2
Vonast er til þess að dómnefnd, sem fer yfir tillögur að nýju skipulagi í Kvosinni í kjölfar brunans í miðbænum í vor, skili niðurstöðu í næstu viku. Eins og fram hefur komið í fréttum bíða eigendur húsanna að Austurstræti 22 og Lækjargötu 2, sem skemmdust mikið í brunanum, eftir því hvað kemur út úr hugmyndasamkeppni um enduruppbyggingu í Kvosinni áður en þeir taka ákvörðun um uppbyggingu. Borgaryfirvöld ákváðu fyrr í sumar að efna til hugmyndasamkeppninnar og er skipulagssvæðið tvískipt. Annars vegar meginsvæði sem er Lækjartorg og byggðin umhverfis það og hins vegar jaðarsvæði sem miðast við Pósthússtræti, suðurhlið Hótel Borgar, Skólastræti, Stjórnarráðið, suðurhlið Tónlistar- og ráðstefnuhússreitsins og Tryggvagötu. Auglýst var eftir hugmyndum frá bæði arkitektastofum og almenningi um skipulag svæðisins og bárust alls 16 tillögur í samkeppnina. Dómnefnd, sem skipuð er fulltrúm borgaryfirvalda, Arkitektafélags Íslands og hagsmunaðila á svæðinu, fer yfir tillögurnar þessa daga og er vonast til þess að hún ljúki störfum í næstu viku, að sögn Nikulásar Úlfars Mássonar, ritara dómnefndar. Nikulás segir að vilji manna sé til þess að ljúka verkinu hratt og vel enda séu brunarústirnar ljótt sár í miðri borginni. Allar tillögur séu þó metnar faglega. Stefnt er að því að deiliskipulag svæðisins verði fullmótað í haust.
Mest lesið Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Innlent Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Erlent Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Innlent „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Innlent Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Fleiri fréttir Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Sjá meira