Garðar Hólm ætlar að verða söluhæstur hjá Remax í Evrópu 29. ágúst 2007 14:16 Garðar hefur starfað hjá Remax í tæp fimm ár MYND/365
Garðar Hólm sölufulltrúi hjá Remax Center var annar söluhæstur hjá Remax-fasteignasölunum í Evrópu á sameiginlegum lista sem gefinn var út í apríl. Listinn er gefinn út á tveggja mánaða fresti en í júní hafði Garðar færst niður um nokkur sæti. Garðar, sem er rekstrarfræðingur og hefur starfað hjá Remax í tæp fimm ár, segist hafa verið að skipta yfir í atvinnuhúsadeildina og að tilfæringarnar sem því fylgdu hafi gert það að verkum að hann hafi fallið niður um nokkur sæti. Hann segir þó mun blómlegri tækifæri í atvinnuhúsageiranum og stefnir að því að verða söluhæsti einstaklingur á listanum innan skamms. Aðspurður um lykilinn að velgengninni segist hann vinna mikið. Hann segir nauðsynlegt að vera lipur í samningatækni og fá bæði kaupanda og seljanda til að verða sammála um verð. Eins segir hann mikilvægt að verða sér úti um góð sambönd og sækjast eftir eignum á skrá. Garðar vill ekki gefa upp mánaðartekjur sínar en heimildir Vísis herma að þær hlaupi á milljónum. Garðar segir menn geta haft það mjög gott í þessum geira. Remax var stofnað í Bandaríkjunum fyrir 35 árum og starfa um 120.000 sölumenn hjá fyrirtækinu um allan heim. Listum yfir velgengni sölumannanna er skipt upp og segir Garðar erfitt að komast inn á Ameríkulistann. Nýlega birtist viðtal við Garðar í tímaritinu Remax international þar sem fjallað er um velgengni hins íslenska sölufulltrúa.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira