Innlent

Rjúpur gera sig heimakomnar í Hólmavík

Rjúpur hafa sótt mjög í þéttbýlið á Hólmavík að undanförnu og eru þær mjög spakar miðað við aðra villta fulga. Á vefnum Strandir segir að grunur leiki á að þær hyggist setjast að í þorpinu fram yfir rjúpnaveiðitímabilið að minnsta kosti því skyttur skjóta ekki í þéttbýli. Á mynd á vefnum má sjá átta rjúpur spranga í rólegheitum um tröppur grunnskólans og margar halda sig svo á tjaldstæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×