Innlent

Vörubíll valt við Kolviðarhól, ökumaður fluttur á slysadeild

MYND/PB

Vörubíll valt skammt frá Hellisheiðarvirkjun, við Kolviðarhól á níunda tímanum í kvöld. Einn maður var í bílnum og var hann fluttur á slysadeild til aðhlynningar en hann var með meðvitund.

Tilkynning um slysið barst Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins klukkan 20:50 í kvöld og fór tækjabíll ásamt neyðarbíl og sjúkrabíl á staðinn. Slökkviliðsmenn frá Selfossi og Hveragerði mættu einnig á slysstað og að sögn vakstjóra hjá SHS unnu liðin að því saman að ná manninum út úr bílnum.

Að svo stöddu er ekkert vitað um tildrög slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×