Auglýsingar með Lalla Johns gegn almennu velsæmi Björn Gíslason skrifar 28. ágúst 2007 14:30 MYND/E.Ól
Siðanefnd Sambands íslenskra auglýsingastofa hefur komist að þeirri niðurstöðu að auglýsing Öryggismiðstöðvarinnar með Lalla Johns hafi brotið gegn siðareglum sambandsins. Þátttaka Lalla Johns í auglýsingunum brjóti gegn almennu velsæmi og sé til þess fallin að höfða til ástæðulauss ótta almennings. Auglýsingarnar voru sýndar á vordögum og ákvað Öryrkjabandalag Íslands að kæra auglýsingaherferðina til siðanefndar Sambands íslenskra auglýsingastofa. Vísaði Öryrkjabandalagið til siðareglna SÍA um að auglýsingar ættu ekki að brjóta gegn almennri velsæmiskennd og höfða að ástæðulausu til ótta fólks. Siðanefndin klofnaði í afstöðu sinni til málsins. Taldi meirihlutinn, eða þrír nefndarmenn, að með auglýsingaherferðinni væri verið að nýta sér bágindi einstakrar persónu og því færi hún gegn almennri velsæmiskennd. Tveir nefndarmenn voru hins vegar á móti. Hvað varðar athugasemdir um að verið væri að höfða að ástæðulausu til ótta fólks komst siðanefndin að því að með auglýsingunni væri verið að gefa í skyn að Lalli Johns myndi brjótast inn. Ástæðulaust væri að ógna almenningi með persónu Lalla með þessum hætti enda frekari ástæða til þess að óttast innbrot og glæpi almennt en Lalla Johns sem slíkan. Töldu fjórir nefndarmenn að auglýsingin færi gegn siðareglum SÍA. Var þeim tilmælum beint til Himins og hafs og Öryggismiðstöðvarinnar að stöðva allar birtingar auglýsinga með Lalla Johns. Siðanefnd banni Lalla Johns að leika í auglýsingum Fram kemur í tilkynningu frá Öryggismiðstöðinni vegna málsins að markmið auglýsinganna hafi verið að minna almenning á mikilvægi þess að huga að öryggi heimilisins fyrir sumarið. Lalli Johns hafi komið fram í auglýsingum í forvarnarskyni og reifað nokkur atriði sem vert væri að hafa í huga varðandi varnir heimilisins. Lýsir Öryggismiðstöðin furðu sinni á niðurstöðu siðanefndarinnar. Bent er á að Lalli Johns hafi sjálfur samþykkt að leika í auglýsingunum og gengið hafi verið frá öllum samningum eins og hefð er fyrir. „Það að Siðanefndin banni Lalla Johns í raun að vinna fyrir sér með leik í auglýsingum hlýtur að orka tvímælis," segir í tilkynningu Öryggismiðstöðinni. „Með það að markmiði að bæta vitund almennings um hættur og öryggisvarnir heimila útilokar Öryggismiðstöðin ekki frekari þátttöku einstaklinga sem hafa reynslu og þekkingu á því sviði í auglýsingum á vegum fyrirtækisins," segir enn fremur í tilkynningu Öryggismiðstöðvarinnar.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira