Enn eitt metið í fjölda skráðra háskólanema Björn Gíslason skrifar 28. ágúst 2007 10:26 MYND/GVA
Úlit er fyrir að enn eitt metið verði slegið í fjölda skráðra háskólanema hér á landi nú í haust. Samkvæmt tölum háskólanna eru hátt í 19 þúsund nemar skráðir til náms í sjö háskólum landsins og hefur þeim fjölgað um 1500 manns eða um níu prósent á milli ára. Þegar hinar nýju tölur eru bornar saman við tölur Hagstofunnar um skráða nemendur í háskólum árið 2001 kemur í ljós að háskólanemum hefur fjölgað um 55 prósent. Þá hafa umsóknir í flesta stærstu háskólana aldrei verið fleiri. Háskólar landsins taka nú til starfa hver á fætur öðrum eftir sumarleyfi og samkvæmt tölum háskólanna eru á sjötta þúsund nýnema sem hefja nám nú í haust. Fjöldi þeirra er þó æði misjafn og jafnan í réttu hlutfall við stærð háskólans. Háskólinn á Bifröst sker sig þó úr því þar er rúmlega helmingur nemanna nýnemar. Metaðsókn hjá bæði HR og Bifröst Hjá Háskólanum í Reykjavík bárust fleiri umsóknir um skólavist en nokkru sinni fyrr í vor eða um 2000. Til samanburðar voru þær um 1700-1800 í fyrra. Um 1100 þeirra voru samþykktar en að sögn Steins Jóhannssonar, forstöðumanns kennslusviðs, er ekki hægt að segja að um 900 manns hafi verið vísað frá þar sem einhver hópur fólks dragi umsóknir sínar til baka og hætti við. Alls verða um þrjú þúsund manns í skólanum í vetur. „Við höfum stækkað ört í samræmi við upptöku nýrra námsbrauta við skólann og erum nú á fimm stöðum," segir Steinn en auk háskólabyggingarinnar við Ofanleiti fer fram kennsla á Höfðabakka í gamla húsnæði Tækniháskólans, við Kringluna 1 og 7 og að hluta til í Reykjanesbæ. Steinn segir mesta ásókn í viðskiptafræði, lögfræði og verkfræðigreinar eins og undanfarin ár. Mikil ásókn sé á vinnumarkaði í fólk með slíka menntun og fólk viti að slík menntun nýtist vel. Að sögn Ingibjargar Guðmundsdóttur, sviðsstjóra kennslusviðs hjá Háskólanum á Bifröst, sóttu um 900 manns um skólavist þetta árið og fengu um tveir þriðju þeirra inngöngu eða um 600 manns. Er þetta metaðsókn. Ingibjörg segir að 1028 virkir nemendur séu skráðir í nám í skólanum en samkvæmt því er rúmlega helmingur nema nýnemar. Ástæðuna fyrir þessu segir Ingibjörg þá að skólinn útskrifi nemendur þrisvar á ári og því sé eflaust meiri endurnýjun á nemendum en í hinum skólunum. Allir umsækjendur á Bifröst eru teknir í viðtal. „Þetta hefur verið brjáluð vinna en skiptist sem betur fer á nokkra hausa," segir Ingibjörg. Kennsla í fjarnámi við skólann er þegar hafin en staðnám hefst þann 3. september. Að sögn Ingibjargar búa um 450 nemendur á háskólasvæðinu og samtals um 800 manns ef með eru taldi makar, börn og starfsfólk skólans. Umsóknum um grunnnám við HÍ fjölgar um 18 prósent Hjá Háskóla Íslands liggja ekki endanlegar tölur fyrir um fjölda nemenda en að sögn Ástu Hrannar Maack, sviðsstjóra markaðs- og samskiptasviðs HÍ, hefur háskólinn ekki heimild til að hafna umsóknum nemenda ef þeir uppfylla þau skilyrði sem deildir skólanna setja. Þannig séu gerðar kröfur um stúdentspróf af stærðfræðideild fyrir inngöngu í verkfræði og enn fremur þreyta nemar í ýmsum heilbrigðisgreinum inntökupróf. Umsóknum um grunnnám við skólann fyrir haustið fjölgaði um 18 prósent frá fyrra ári og segir í tilkynningu Háskólans að teknu tillit til alls megi áætla að á þriðja þúsund nýnema hefji nám við Háskólann nú í haust haust. Þannig hafa 50 prósentum fleiri stúdentar sótt um nám í viðskiptafræði en haustið 2006 og nærri 100 prósent fleiri vilja hefja nám í iðnaðarverkfræði. Þá vilja nærri 75 prósentum fleiri vilja læra tölvunarfræði við háskólann en haustið 2006. Ásta segir enn fremur að umsóknum um framhaldsnám hafi einnig fjölgað en ekki liggi fyrir hversu mikið. Endanlegar tölur um fjölda nemenda liggja ekki fyrir fyrr en um miðja október því þá þurfi fólk að skrá sig í próf. Ákveðinn fjöldi skrái sig alltaf í skólann að vori en fari svo ekki í nám. Um 9300 manns voru skráðir til náms í fyrrahaust og segir Ásta ekki óvarlegt að áætla að þeir séu um tíu þúsund nú þótt þeir séu misvirkir. Hjá Kennaarháskóla Íslands, sem sameinast HÍ næsta vor, hefja rúmlega 930 manns nám nú í haust en nýnemadagar stóðu yfir í síðustu viku. Alls bárust um 1500 umsóknir um nám við skólann, 1000 í grunnnám og 500 í framhaldsnám, því þurfti að vísa tæplega 600 manns frá. Samkvæmt upplýsingum frá Kolbrúnu Mjöll Hrafnsdóttur varð mest fjölgun á umsóknum í þroskaþjálfafræði og leikskólakennarafræði á milli ára en umsóknum un nám í grunnnámi fjölgaði fjölgaði um um það bil tíu prósent. Umsóknum um meistaranám og doktorsnám fækkar lítillega milli ára en umsóknum um fjarnám fjölgar hins vegar töluvert enda mikið lagt í það að sögn Kolbrúnar. Helmingi fleiri hefja fjarnnám í leikskólakennarafræði nú en í fyrra, eða 109 á móti 53 í fyrra. Alls eru 2700 nemendur skráði í skólann. Skiptinemar frá Lettlandi og Kína við HA Um 540 nemendur hefja nám á fyrsta ári í Háskólanum á Akureyri í haust að sögn Laufeyjar Petreu Magnúsdóttur, forstöðumanns kennslusviðs, en það er svipaður fjöldi og í fyrra. Laufey segir að háskólinn hafi því miður þurft að synja 80 umsækjendum um skólavist þar sem þeir uppfylltu ekki þær kröfur sem gerðar eru um nauðsynlegan undirbúning. Þá eru um 20 skiptinemar skráðir til náms nú á haustmisseri í Háskólanum á Akureyri og koma þeir víða að, meðal annars frá hinum norrænu ríkjunum og Lettlandi, Bandaríkjunum og Kína. Alls verða um 1400 manns við nám í Háskólanum á Akureyri í vetur. Aukinn áhugi á umhverfisskipulagi Hjá Listaháskóla Íslands hefja 134 nám nú í haust en alls stunda um 420 manns nám við skólann. Alls bárust 380 fullgildar umsóknir um nám í myndlistardeild, tónlistardeild og hönnunar- og arkitektadeild en 96 þeirra fengu inngöngu og komst um fjórðungur umsækjend að í deildunum þremur. Kennsla hófst í byrjun síðustu viku en hægt var að sækja um kennaranám til 24. ágúst. Hins vegar voru engir nemendur teknir inn í leiklistardeild en það verður gert næst í byrjun árs 2008. Á Landbúnaðarháskóla Íslands að Hvanneyri er 131 nýnemi að sögn Þórunnar Eddu Bjarnadóttur. Um 160 umsóknir bárust skólanum og því þurfti að vísa um 30 frá. Alls verða um 310 manns við nám í skólanum, flestir við nám í umhverfisskipulagi sem þykir gefa góða undirstöðu til áframhaldandi náms í landslagsarkitektúr eða öðrum skipulagsgreinum. Nemendum við skólann hefur fjölgað um 70 frá fyrri tveimur árum og aðspurð um ástæðuna fyrir því segir Þórunn Edda að skólinn sé góður og að þetta sé til marks um aukinn áhuga fólks á umhverfi sínu.
Mest lesið Leita týnds göngumanns Innlent Hljóðfæraleikarar að óbreyttu á leið í verkfall Innlent Taka húfurnar úr sölu: Harma að „misheppnað grín“ hafi komið illa við fólk Innlent Ökumenn mótorhjóla greiða meira en landsbyggðin minna Innlent Sjö hundruð landgönguliðar á leið til Los Angeles Erlent Leita leiða til að auðvelda framsal fanga til heimalands síns Innlent Newsom ætlar að kæra Trump Erlent Konan er fundin Innlent Sannfærð um sakleysi eiginmannsins og segir hann hetjuna sína Erlent Skotin með gúmmíkúlu í beinni frá mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Hljóðfæraleikarar að óbreyttu á leið í verkfall Leita týnds göngumanns Leita leiða til að auðvelda framsal fanga til heimalands síns Taka húfurnar úr sölu: Harma að „misheppnað grín“ hafi komið illa við fólk Nemar á Landspítalanum klæddust „Öldrunarbúningi“ Ökumenn mótorhjóla greiða meira en landsbyggðin minna Ástand í Kaliforníu og breytt frumvarp um kílómetragjald Tveir sjúkrabílar kallaðir út vegna bílslyss við Mjódd Sóttu veikan sjómann Konan er fundin Slökktu eld á svölum á fjórðu hæð í Engihjalla Ekki hægt að nota rafræn skilríki Mjög áhyggjufull yfir tilfærslu ráðuneytisins Frestun fjármagns til verkmenntaskóla, mótmæli í LA og fjölmenningarhátíð Komu í veg fyrir sýruleka á Akureyrarhöfn „Erum ekki að lýsa yfir stuðningi við Trump“ Þotur notaðar í flugi Icelandair til Nuuk Íslendingur á válista CIA árið 1970 Flutningur Konukots mikið framfaraskref en skilur áhyggjur nágranna Vond stjórnsýsla að teikna bara einhverja reiti á kort Fresta uppbyggingu verkmenntaskóla: „Þessi óvissa er fyrir neðan allar hellur“ Menningarveisla í allt sumar á Sólheimum Björgunarsveit selur derhúfur í stíl Bandaríkjaforseta Alvarlegt ástand í Los Angeles og opnun nýs Konukots Eftirlýstur maður handtekinn grunaður um vændiskaup Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna Heilbrigðisstofnun Suðurnesja skilaði 800 milljónum til ríkissjóðs Alþjóðlegir sérfræðingar ræða baráttuna gegn myglu í Hörpu Hermenn í Los Angeles, mylguráðstefna og síðasti leikur Arons Pálmarssonar Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Sjá meira